Dönsk-íslensk orðabók Konráðs Gíslasonar í stafrænni gerð
DOI:
https://doi.org/10.33112/ordogtunga.28.8Lykilorð:
söguleg orðabók, stafræn gögn, málhreinsunÚtdráttur
Í þessari stuttu grein er fjallað um yfirstandandi vinnu við gerð nýrrar stafrænnar útgáfu af dansk-íslenskri orðabók Konráðs Gíslasonar (Dönsk orðabók með íslenzkum þýðingum) sem kom út árið 1851. Gert er grein fyrir helstu formgerðareinkennum þessa mikilvæga verks og hvernig það mótaðist af hugmyndum Konráðs um málhreinsun. Þá er vinnuferli núverandi verkefnis reifað og lýst hvernig úrvinnslu á hinu lexíkógrafíska efni er háttað, bæði með sjálfvirkum hætti og handvirkt þar sem þess gerist þörf. Stefnt er að birta útgáfuna á sérstöku vefsvæði þar sem notendur geta auðveldlega nálgast þann mikla fróðleik um 19. aldar íslensku sem er að finna í þessari orðabók.