Blöndun sem orðmyndunaraðferð í íslensku

Orðaleikir eða orðmyndun?

Authors

  • Ágústa Þorbergsdóttir Author
  • Kristín Ingibjörg Hlynsdóttir Author

DOI:

https://doi.org/10.33112/ordogtunga.28.3

Keywords:

blendingar, nýyrði, orðmyndun, orðaleikir

Abstract

Á síðustu árum hafa ýmis nýyrði vakið athygli sem mynduð eru með blöndun tveggja orða, t.d. hrútskýring (hrútur og útskýring), skjáhætta (skjár og áhætta) og frískápur (frír og ísskápur), en fram til þessa hefur ekki mikið verið fjallað um blöndun sem íslenska orðmyndunaraðferð. Blöndun er þekkt í öðrum tungumálum, m.a. ensku. Í þessari grein er fjallað um blöndun sem orðmyndunaraðferð í íslensku út frá safni orða sem mynduð hafa verið með þessari aðferð. Gerð var athugun á því hvað einkennir form blendinga, hvaða orðum er blandað saman, hvernig þau skarast og hvað blendingar eiga sameiginlegt með orðunum sem notuð eru til þess að mynda þá. Einnig er fjallað um hlutverk blendinga í málsamfélaginu, hvata til þess að mynda blendinga og notkunarsvið. Blendingar eru oft myndaðir til þess að koma í stað enskra blendinga eða erlendra orða sem íslensk nýyrði en að auki koma þeir fyrir sem eins konar orðaleikir. Þá eru blendingar einnig algengir í auglýsingum. Markmið athugunarinnar er að sýna fram á að blöndun er nýtt sem orðmyndunaraðferð í íslensku og að hana er vert að rannsaka betur.

Published

2026-10-28

Issue

Section

Peer-reviewed Articles