Viðskiptasamtal á 18. öld
Kennslubókartexti í íslensku fyrir útlendinga
DOI:
https://doi.org/10.33112/ordogtunga.28.4Keywords:
mál 18. aldar, þjónustusamtal, samtalsgreining, upphaf og niðurlag samtalsAbstract
Í þessari grein er fjallað um uppbyggingu og formgerð þjónustusamtals í kaupmannsbúð á Íslandi á 18. öld, eins og það birtist í litlu kennslukveri í íslensku ætlað útlendingum sem samið var um 1735. Fyrst er rætt um aðdraganda þess að kverið var sett saman og hugsanlegar fyrirmyndir sem höfundurinn, Jón Ólafsson úr Grunnavík, studdist við. Þá er formgerð samtalsins lýst með aðferðum samtalsgreiningar, rannsóknaraðferðar sem fæst við að greina þau lögmál sem búa að baki því hvernig fólk skiptist á orðum og byggir upp samtal. Sjónum er sérstaklega beint að því hvaða leiðir eru farnar til að hefja samtalið og slíta því.
Downloads
Published
2026-10-28
Issue
Section
Peer-reviewed Articles