Textafræði örnefnaskrár

Textafræðileg rannsókn og ný útgáfa á örnefnaskrá Kasthvamms og Árhvamms

Höfundar

  • Aðalsteinn Hákonarson Höfundur

DOI:

https://doi.org/10.33112/ordogtunga.28.5

Lykilorð:

örnefni, örnefnasöfnun, örnefnaskrár, textaútgáfur, textafræði

Útdráttur

Örnefnaskrár í Örnefnasafni Árnastofnunar rituðu örnefnasafnarar eftir heimildarmönnum eða sjálfir heimildarmennirnir. Yfirleitt er örnefnaskrám ekki miðlað í frumritum heldur endurritum þar sem upphaflegum texta hefur verið breytt að meira eða minna leyti. Oft eru breytingarnar aðeins samræming stafsetningar og greinarmerkja en jafnframt hefur oft verið ráðist í efnislega endurskoðun samfara endurrituninni. Í greininni er í fyrsta sinn fjallað þetta starf sem eðlilegast er að kalla útgáfu örnefnaskráa. Almennt yfirlit er gefið um sögu Örnefnasafns og útgáfustarfið sem því tengdist en auk þess er aðferðafræði við útgáfurnar rædd með gagnrýnum hætti. Lesendum er veitt innsýn í útgáfustarfið með kynningu á ítarlegri textafræðilegri rannsókn á útgáfusögu örnefnaskrár Kasthvamms og Árhvamms í Laxárdal í Suður-Þingeyjarsýslu. Rannsóknin var gerð við undirbúning nýrrar endurskoðaðrar útgáfu örnefnaskrárinnar veturinn 2022–2023. Þessi örnefnaskrá hefur verið endurrituð þrisvar og í eitt skipti fór einnig fram efnisleg endurskoðun. Eiginhandarrit höfundar skrárinnar er glatað. Við rannsóknina voru fyrri útgáfur samlesnar nákvæmlega en auk þess var sjónum beint að öðrum hefðbundnum viðfangsefnum textafræði, svo sem ritunartíma og höfundi örnefnaskrárinnar. Þá er gerð grein fyrir nýrri endurskoðaðri útgáfu örnefnaskrár Kasthvamms og Árhvamms þar sem í aðferðafræði var reynt að taka mið af gagnrýni á eldri útgáfur.

Niðurhal

Útgefið

2026-10-28

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar