„Handboltinn að handbolta yfir sig“
Merking og myndun sagna í orðasambandinu að X-a yfir sig
DOI:
https://doi.org/10.33112/ordogtunga.28.2Lykilorð:
íslenska, aðskeytislaus orðmyndun, merking, merkingartúlkun, erlend áhrifÚtdráttur
Í þessari grein er sagt frá orðmyndun sem hefur náð töluverðri útbreiðslu á síðustu árum og áratugum á samfélagsmiðlum, aðallega Twitter. Um er að ræða myndun sagna, aðallega af nafnorðum, sem einkum eiga sér stað í orðasambandinu SÖGN + yfir sig. Sagnir af öðrum orðflokkum en nafnorðum geta einnig komið fyrir. Um er að ræða svonefnda aðskeytislausa orðmyndun (e. conversion) sem er frábrugðin venjubundinni orðmyndun að því leyti að þar er hvorki notast við aðskeyti né samsetningu. Kannað var mikið safn dæma til þess að komast nánar að eðli orðmyndunarinnar í orðasambandinu. Rúmlega 400 sagnir fundust sem myndaðar voru af samnöfnum en einnig sérnöfnum bæði fólks og félaga. Orðasambandið hefur verið til í íslensku en þá bundið við tiltölulega fáar sagnir en svo virðist sem breyting verði þar á í lok 20. aldar þegar sagnirnar verða æ fjölbreyttari. Í sumum tilfellum er einnig um að ræða breytingar á merkingu sagnanna. Þessa breytingu verður að skoða í samhengi við tilkomu samfélagsmiðla síðustu ár og áratugi.