Greinakall

2023-06-08

Tímaritið Orð og tunga óskar eftir greinum til birtingar í 26. hefti tímaritsins (2024). Frestur til að skila greinarhandritum er til 1. október 2023.   

Orð og tunga er ritrýnt tímarit sem Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum gefur út árlega. Birtar eru fræðilegar greinar, á íslensku, ensku og norrænum málum, sem lúta að málfræði og málnotkun en sérstök áhersla er lögð á greinar um orðfræði, orðabókafræði, nafnfræði, íðorðafræði og málræktarfræði.   

Hámarkslengd greina er 8.000 orð. Upplýsingar um skil á handritum, frágang o.s.frv. er að finna á vefsíðu tímaritsins (ordogtunga.arnastofnun.is > til höfunda). Á síðunni má einnig finna efnisyfirlit og útdrætti eldri árganga.   

Með því að senda inn handrit lýsir væntanlegur höfundur sig samþykkan því fyrirkomulagi að greinin verði birt samtímis á prenti og í rafrænni gerð.   

Vinsamlegast hafið samband við ritstjóra ef fleiri spurningar vakna.  

 

Ellert Þór Jóhannsson og Jóhannes B. Sigtryggsson ritstjórar  

ordogtunga@arnastofnun.is