Greinakall

2022-05-31

Tímaritið Orð og tunga óskar eftir greinum til birtingar í 25. hefti tímaritsins (2023). Frestur til að skila greinarhandritum er til 1. september 2022.   

Að þessu sinni verður sjónum einkum beint að blótsyrðum og bannorðum. Fræðimenn sem héldu erindi á alþjóðlegu málþingi um blótsyrði (SwiSca 7) eru sérstaklega hvattir til að senda inn greinar sem byggjast á þeim. Eins og áður er þó einnig tekið við greinum sem falla undir önnur áherslusvið tímaritsins. 

Orð og tunga er ritrýnt tímarit sem Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum gefur út árlega. Birtar eru fræðilegar greinar, á íslensku, ensku og norrænum málum, sem lúta að málfræði og málnotkun en sérstök áhersla er lögð á greinar um orðfræði, orðabókafræði, nafnfræði, íðorðafræði og málræktarfræði.   

Hámarkslengd greina er 8.000 orð. Upplýsingar um skil á handritum, frágang o.s.frv. er að finna á vefsíðu tímaritsins (ordogtunga.arnastofnun.is > til höfunda). Á síðunni má einnig finna efnisyfirlit og útdrætti eldri árganga.   

Með því að senda inn handrit lýsir væntanlegur höfundur sig samþykkan því fyrirkomulagi að greinin verði birt samtímis á prenti og í rafrænni gerð.   

Vinsamlegast hafið samband við ritstjóra ef fleiri spurningar vakna.  

 

Ellert Þór Jóhannsson og Helga Hilmisdóttir ritstjórar  

ordogtunga@arnastofnun.is