Íslensk orðabók í hálfa öld. Nokkur atriði um endurskoðun og endurnýjun Íslenskrar orðabókar
Abstract
Íslensk orðabók hefur gegnt sama hlutverki allt frá því hafist var handa við vinnu hennar sumarið 1957. Hún á að geta verið þeim til gagns sem þurfa skýringar á íslenskum orðum úr gömlu lesefni og nýju, daglegum viðfangsefnum okkar og nýjungum á öllum sviðum. Þegar hafist var handa við þriðju útgáfu bókarinnar var ekki ætlun forlagsins, þá Máls og menningar en nú Eddu útgáfu hf., að endurskoða bókina í heild sinni en valdir voru úr þeir verkþættir sem þóttu mikilvægastir. Tákna- og merkjakerfi bókarinnar sem segir til um aldur orða, útbreiðslu og málsnið var endurskoðað með tilliti til þarfa notenda og breyttra aðstæðna. Sagnlýsing bókarinnar var tekin til gagngerrar endurskoðunar, nokkrir efnisflokkar voru yfirfarnir af sérfræðingum og ákveðin merkingarsvið orðtekin sérstaklega. Ýmis verkefni bíða þó betri tíma.