On the origin of the oldest borrowed Christian terminology in Icelandic
DOI:
https://doi.org/10.33112/ordogtunga.18.5Abstract
Grein þessi fjallar um uppruna elsta kjarna kristins tökuorðaforða sem enn er varðveittur í íslensku, þ.e. þeirra tökuorða sem munu hafa komið inn í norrænu á tímabilinu milli fyrstu trúboðsferðanna á Norðurlöndum (9. öld) og stofnunar erkibiskupsdæmis í Niðarósi (1153). Eftir stuttan inngang (1) verður fjallað um áðurnefnt tímabil frá sögulegu sjónarhorni (2). Orðasafnið (45 orð) er kynnt ásamt merkingarlegri greiningu þess (3). Um greininguna er einnig fjallað með tilliti til aldurs textanna sem varðveita tökuorðin. Í (4) er athygli beint að tíu orðum sem hafa verið valin vegna mikilvægis þeirra bæði frá sjónarhorni sögu íslenskrar tungu og orðsifjafræði. Þar verður annars vegar reynt að varpa ljósi á hlutverk fornsaxnesku á fyrstu öldum kristni á Norðurlöndum og á Íslandi, og hins vegar eru sumar orðsifjar úr íslensku orðsifjabókunum þremur (AeW, IeW og ÍOb) metnar og endurskoðaðar. Í síðasta kaflanum (5) er áhersla lögð á mikilvægi þess að nota aðferð sem byggist á sagnfræði, ásamt mál- og textafræði. Samspil þessara þriggja fræðigreina er nauðsynlegt ef leitað er dýpri skilnings á menningarlegu og málvísindalegu samhengi ákveðinna hluta orðaforðans. Um elsta kjarna kristins tökuorðaforða er hér rætt sem áhugavert dæmi.