Basic Color Terms in Old Norse Icelandic: A Quantitative Study

Höfundar

  • Kirsten Wolf Department of Scandinavian Studies University of Wisconsin-Madison Höfundur

Útdráttur

Í ritinu Basic Color Terms (1969) halda Brent Berlin and Paul Kay því fram að orð um grunnliti komi inn í tungumál í tiltekinni röð: 1: svart, hvítt; 2: svart, hvítt, rautt; 3a: svart, hvítt, rautt, grænt; 3b: svart, hvítt, rautt, gult; 4: svart, hvítt, rautt, gult, grænt; 5: svart, hvítt, rautt, gult, grænt, blátt; 6: svart, hvítt, rautt, gult, grænt, blátt, brúnt; 7: svart, hvítt, rautt, gult, grænt, blátt, brúnt, fjólublátt, bleikt, appelsínugult, grátt . Síðar hafa hugmyndir þeirra verið þróaðar áfram og gagnrýndar nokkuð og til að bregðast við því hafa þessir tveir málvísindamenn og mannfræðingar breytt þeim.

Forníslenska hafði orð um átta grunnliti. Nýlegar rannsóknir á þeim styðja í aðalatriðum þróunarröð Berlin and Kay þótt því hafi verið haldið fram að gera þyfti ráð fyrir því að grár komi snemma fram, að blár komi seint fram, að grænn tilheyri fyrra stigi en gulr og að brúnn komi tiltölulega seint fram.

Í þessari grein er kynnt megindleg rannsókn á grunnlitaorðum í Íslendingssögum og Íslendingaþátt um. Markmið hennar var að kanna hvort vensl væru á milli tíðni hugtakanna og þeirrar þróunarraðar sem haldið hefur verið fram, þótt viðurkennt sé að ekki þurfi endilega að vera bein tengsl milli samtímalegrar notkunartíðni og sögulegrar stigskiptingar í tilkomu þeirra. Áberandi munur milli notkunartíðni og þeirrar þróunarraðar sem Berlin og Kay halda fram birtist í því hvað rauðr er algengur. Ástæða þess að svartr og hvítr eru tiltölulega fátíðir í samanburði við rauðr kynni að vera sú að þeir fyrrnefndu eiga sér ýmis nálæg samheiti en aftur á móti er rjóðr eina nálæga samheitið við rauðrBlár er líka algengur en þar sem það orð vísaði upprunalega til dökks litar en tengdist ekki bláa litrófi nu beint fyrr en seint á 14. öld er væntanlega rétt að fl okka stærstan hluta dæmanna um blár með svartr. Könnun á tíðni brúnngrænn og gulr styður þá röð sem stungið hefur verið upp á að því leyti að gulr tengist síðbúnu stigi og kemur á eftir grænn og brúnn. Niðurstaðan er sú að jafnvel þótt ekki virðist vera nein vensl á milli (áætlaðs) ritunartíma einstakra sagna og tíðni og fjölbreytileika grunnlitarorða í þeim, virðast vera vensl milli tíðni grunnlitarorða í forníslensku og þróunar þeirra samkvæmt þróunarstigveldi Berlin and Kay í þeirri útgáfu sem löguð hefur verið að forníslensku.

Niðurhal

Útgefið

2020-07-15

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar