Yfirlit yfir notkun strika í íslensku
DOI:
https://doi.org/10.33112/ordogtunga.18.10Útdráttur
Í þessu yfirliti eru strik flokkuð í undirflokka eftir notkun í íslenskri stafsetningu. Grunnskipting er í bandstrik, millistrik og þankastrik en tveir fyrstu flokkarnir skiptast í marga undirflokka eftir tilgangi og notkun og hefur ekki áður verið fjallað um ýmsa þeirra.